Rafrænar undirritanir byggðar á ströngustu öryggisstöðlum
Meira en rafrænar undirritanir. Safnaðu skjölum, undirritaðu þau og hafðu umsjón með þeim hjá fullgildum traustþjónustuveitanda (QTSP).
Rafrænar undirritanir fyrir fyrirtæki af öllum stærðum
Rafrænar undirritanir fyrir alla, frá einstaklingum til alþjóðlegra stórfyrirtækja.
Allt á einum stað
Hafðu umsjón með skjölunum þínum á öllum stigum, frá fyrstu undirritun til langtímavarðveislu.
Þvert á landamæri
Sendu skjöl til samstarfsaðila um allan heim og undirritaðu þau á öruggan hátt.
Í fullu samræmi við regluverk
Dokobit uppfyllir ströngustu kröfur eIDAS um öryggi og regluvörslu í Evrópu.
Settu upp þitt eigið skjalaferli
Stilltu nákvæma röð aðgerða og úthlutaðu mismunandi hlutverkum: allt frá því að samþykkja drög og undirrita í réttri röð, yfir í það eitt að skoða fullbúið skjalið.
Hafðu fulla stjórn á skjalasafninu þínu
Flokkaðu skjöl í sameiginlega flokka og stýrðu aðgangi með notendaheimildum. Tryggðu að allt sé öruggt, í samræmi við reglur og auðfundið.
Hafðu miðlæga umsjón með teyminu og reikningsfærslunum
Fáðu fulla yfirsýn með einu stjórnborði. Hafðu umsjón með öllum notendum, stýrðu stillingum og sjáðu um reikningsfærslur til að spara tíma við umsýslu.
Lausn sem vex með rekstrinum þínum
Hannaðu undirritunarferli fyrir viðskiptavini þína í stíl við vörumerki fyrirtækisins. Eftir því sem reksturinn vex geturðu tengt Dokobit við hugbúnaðinn sem þú notar nú þegar með API-vefþjónustunni okkar eða tilbúinni tengingu við Salesforce.
Einfaldur og notendavænn vetvangur
Undirritaðu hvaða skjal sem er með örfáum smellum. Engin uppsetning og enginn aðlögunartími, sem þýðir að þú getur byrjað þegar í stað.
Engar málamiðlanir í öryggismálum
Við tryggjum öllum viðskiptavinum okkar sama öryggi og traust, þar með töldum þeim sem eru með ókeypis aðgang.
Eitt verkflæði fyrir mörg skjöl
Sparaðu tíma með því að hlaða upp og undirrita mörg PDF-skjöl í einu og sama verkflæðinu.
Skilafrestir og áminningar fyrir hvert skjal
Settu skilafrest og láttu kerfið okkar sjá um að senda sjálfvirkar áminningar fyrir þig.
Leiðandi fyrirtæki og stofnanir treysta okkur
Lausnin gerði okkur kleift að leggja niður skjalageymslur og innrétta þægileg fundarrými í þeirra stað.
Við völdum Dokobit því lausnin hentaði okkur mjög vel og starfsfólkið var hjálpsamt í öllu ferlinu. Samstarfið hefur verið hnökralaust og til fyrirmyndar.
Það að hafa einn áreiðanlegan samstarfsaðila fyrir allar okkar auðkenningar- og undirskriftaþarfir hefur einfaldað alla innri ferla til muna.
Byrjaðu frítt. Stækkaðu eftir þörfum.
Fyrir þá sem undirrita stöku sinnum
Fríáskrift
- Undirritaðu skjöl til einkanota
- Kynntu þér gáttina áður en þú skuldbindur þig
- Gerðu fullgildar og lagalega bindandi undirritanir
Fyrir teymi
Business
- Aðgangur fyrir marga notendur og teymisstýring
- Miðstýrt eignarhald skjala
- Stillingar fyrir fyrirtækið
- Sérsniðið undirritunarferli með þínu vörumerki










